kokoshnetan.blogspot.com
í heyranda hljóði: september 2004
http://kokoshnetan.blogspot.com/2004_09_01_archive.html
Miðvikudagur, september 29, 2004. Í dag eru 10 ár frá því Estonia sökk. Ég var í námi í Helsinki þá (sjá nostalgía. Mér fannst þessi atburður því ansi nærri mér og las Moggann alla næstu daga á gangi norrænu deildarinnar. Áhrifaríkust fannst mér frásögn karls og konu sem ekkert þekktust en hittust uppá dekki og ákváðu að stökkva saman. Þau voru misfljót upp aftur en fundu hvort annað og björguðust. Eistneski fánninn innprentaðist í mig þennan dag. Posted by kókó @ 5:50 f.h. Posted by kókó @ 5:23 f.h.
kokoshnetan.blogspot.com
í heyranda hljóði: febrúar 2005
http://kokoshnetan.blogspot.com/2005_02_01_archive.html
Miðvikudagur, febrúar 23, 2005. Koddahjal okkar mæðgna er oft á heimspekilegum nótum. Í kvöld þegar ég var að svæfa dóttlu spurði hún mig áleitinna spurninga. Afhverju eru til ljót orð sem má ekki segja? Til hvers eru þau til? Hver bjó þau til? Satt að segja varð mér svarafátt en sagði henni þó að þetta væri skarplega athugað. Hún sagði að ef þessi orð væri ekki til myndi ekkert ljótt vera sagt. Posted by kókó @ 11:53 e.h. Eina er ég að hugsa um að kalla "símadömu" og skilja það þau sem þurfa á að halda.
kokoshnetan.blogspot.com
í heyranda hljóði: apríl 2005
http://kokoshnetan.blogspot.com/2005_04_01_archive.html
Föstudagur, apríl 29, 2005. Hér er ein fyndin. You scored as The Beast. Your alter ego is The Beast! But that is only a name. you are kind hearted and sweet, people just misunderstand you. Which Disney Character is your Alter Ego? Created with QuizFarm.com. Posted by kókó @ 11:23 e.h. Ég er frjáls eins og fuglinn. Flogið næstum ég gæti. Nú á ég flugmiða, og dóttla. Hefur e-r reynslu af að keyra um Norðurlöndin? Gildir gamla góða bleika ökuskírteinið eða þarf ég nýtt? Posted by kókó @ 10:45 e.h. You are a...
kokoshnetan.blogspot.com
í heyranda hljóði: maí 2005
http://kokoshnetan.blogspot.com/2005_05_01_archive.html
Þriðjudagur, maí 31, 2005. Í vinnunni voru tvær konur kvaddar í dag í vinnunni. Það hafa 5 konur undir 35 ára aldri byrjað þar undanfarna 2 mánuði. Aldeilis umskipti á ekki stærri vinnustað. Það verður spennandi að fylgjast með breytingunum. Það verða reyndar ekki einu breytingarnar. Posted by kókó @ 11:00 e.h. Það er komið í ljós að netkortið í tölvunni er e-ð bilað. Verð því að nota snúru en kemst þó á netið. Er á meðan er. Posted by kókó @ 10:57 e.h. Mánudagur, maí 30, 2005. Sunnudagur, maí 29, 2005.
kokoshnetan.blogspot.com
í heyranda hljóði: ég er barnshafandi
http://kokoshnetan.blogspot.com/2008/12/g-er-barnshafandi.html
Miðvikudagur, desember 31, 2008. Við skötuhjú eigum von á barni með vorinu. Það er mikil gleði því fylgjandi. Ég keypti brjóstsykur gegn ógleði á meðgöngu, sem kostaði kr. 200 stk. og tímdi ég ekki að taka fleiri en 2 á dag. Einn í morgunsturtu og jafnvel annan í bílnum á leiðinni. Hraðahindranir ollu ógleði, eru alveg óþolandi fyrirbæri. Getum við ekki bara keyrt varlega/hægar? Jæja, en þetta tímabil virðist liðið hjá, kastaði síðast upp áður en ég fór í 20 vikna sónar 15. des. At 31 desember, 2008 09:35.
kokoshnetan.blogspot.com
í heyranda hljóði: desember 2004
http://kokoshnetan.blogspot.com/2004_12_01_archive.html
Fimmtudagur, desember 23, 2004. Nú hef ég fengið 3 kort þar sem notaðir eru prentaðir límmiðar. Þar sem ég er að reyna að standast freistinguna að opna kortin, eftir áralanga sneypu frá vinkonum, en mér finnst kortin vera hluti að aðventu og skreytingu, fremur en að týnast í pakkaflóðinu á aðfangadag. Þá hef ég staðist þessa freistingu þessi jólin en er svekkt að geta ekki ráðið í eiginhandaráritun á umslögunum þar sem prentaðir límmiðar eru notaðir. Eitt kort er líka innsiglað. Jólastressið helltist yfi...
kokoshnetan.blogspot.com
í heyranda hljóði: nóvember 2004
http://kokoshnetan.blogspot.com/2004_11_01_archive.html
Mánudagur, nóvember 22, 2004. Það er orðið langt síðan síðast. Þessi vika hefur verið ansi strembin auk þess sem eitthvað bilerí var á blogginu um síðustu helgi og eyddust 2 póstar sem ég reyndi að pósta. Var geðveikt svekkt og notast núna við Word fyrst en ekki beint á bloggið. Læt hitt svo gossa smám saman. Ég hef hvorki haft tíma að lesa allan póstinn og hvað þá fréttir eða blogg svo sem Farfuglsins og er þá mikið sagt. Hey svo ætlaði ég að pósta þessu en fékk bara villumeldingu:. Á Broadway. Og þ...
kokoshnetan.blogspot.com
í heyranda hljóði: klára árið
http://kokoshnetan.blogspot.com/2008/12/klra-ri.html
Þriðjudagur, desember 30, 2008. Best að klára árið á þessum vígstöðvum. Ætli ég segi ekki gott af krepputali, áhugasamir lesa yfir sig nóg annars staðar. Einhverjum fannst ég þunglynd að spá í eignastöðu og hvenær hún næði núlli en síðar urðu allir fjölmiðlar uppfullir af fólki sem er að spá í þetta núna, að láta bankann yfirtaka eignina frekar nú en síðar.En sumsé. Við hér í kotinu höfum tekið ákvörðun um að halda okkur við fyrri ákvarðanir þar til mál skýrast. Posted by kókó @ 11:51 e.h.
kokoshnetan.blogspot.com
í heyranda hljóði: sala eða gjöf
http://kokoshnetan.blogspot.com/2008/11/sala-ea-gjf.html
Föstudagur, nóvember 21, 2008. Ég skil ekki hvernig hægt er að selja hlutabréf. Ef engin greiðsla kemur í staðinn. Er það ekki gjöf? Posted by kókó @ 4:00 e.h. Skoða allan prófílinn minn. 10-20 millur á mann. Flótti úr heilbrigðisgeira. Nick Leeson á Íslandi í fyrra. Iacute;slenskur almenningur = skríll? Vísitöluútreikningar. Thorn;jóðarábyrgð. Orkufrekt félagslíf.