sveitalubbinn.blogspot.com
Sveitalubbinn: ágúst 2008
http://sveitalubbinn.blogspot.com/2008_08_01_archive.html
Fimmtudagur, ágúst 07, 2008. Það tilkynnist hér með. Að sökum afleitrar lausafjárstöðu er tuttuguogtíu ára afmælinu mínu, sem að sjálfsögðu var meiningin að halda upp á með pompi og pragt og ærlegu fylleríi, frestað um óákveðinn tíma. Líklega að minnsta kosti ár eða svo. Í stað þess að undirbúa afmælisteiti held ég til fjalla í góðum hópi manna og hesta og hyggst ekki koma til byggða á ný fyrr en ég verð nokkuð örugglega skriðin inn á næsta aldursár. Posted by Hallfríður Ósk at 1:41 f.h.
sveitalubbinn.blogspot.com
Sveitalubbinn: nóvember 2007
http://sveitalubbinn.blogspot.com/2007_11_01_archive.html
Miðvikudagur, nóvember 14, 2007. Tveimur mánuðum síðar . Og nokkrum dögum betur kemur loksins ný færsla, reyndar um löngu liðna atburði, og aldeilis ekki í styttri kantinum. Það sem hér fer á eftir fjallar bara um göngur og réttir þannig að þeir sem ekki nenna að lesa svoleiðis geta sparað sér ómakið. Menn voru misferskir þegar lagt var af stað morguninn eftir en allir skiluðu sér þó til byggða þrátt fyrir þoku og snjókomu. Sveitalubbinn kveður úr sveitasælunni. Posted by Hallfríður Ósk at 12:10 f.h.
sveitalubbinn.blogspot.com
Sveitalubbinn: nóvember 2006
http://sveitalubbinn.blogspot.com/2006_11_01_archive.html
Miðvikudagur, nóvember 08, 2006. Posted by Hallfríður Ósk at 8:39 e.h. Hallfríður Ósk. Heimilisfang: Víðidalstunga, 531 Hvammstangi sími:8655545 E-mail: hallfriduro(hjá)hotmail.com. Skoða allan prófílinn minn. Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda. Ýmislegt gagnlegt og gott. Rólegt og þægilegt vefútvarp. Hvernig komast á leiðar sinnar í DK. Hvað er að gerast í Köben. Wikipedia, The free encyclopedia. Ekki gagnlegur kannski en góður. Helga, Palli og Co.
sveitalubbinn.blogspot.com
Sveitalubbinn: desember 2008
http://sveitalubbinn.blogspot.com/2008_12_01_archive.html
Þriðjudagur, desember 09, 2008. Og nú geta þær gengið helvískar! En það verður bara að skýrast þegar nær dregur hvað tíminn leifir. En jæja. Komið meira en nóg í bili. Ekki rétt að eyða löngum tíma í bloggskriftir þegar nóg er af öðrum verkefnum. Kveðja frá sveitalubba í önnum. Posted by Hallfríður Ósk at 1:55 e.h. Föstudagur, desember 05, 2008. Furðulegur andskoti alveg. Ætli ég verði ekki bara að kenna komandi utanlandsferð og jólum um það. Og talandi um Noreg, já Maríanna hún systir mín er ósköp erfið...
sveitalubbinn.blogspot.com
Sveitalubbinn: júní 2007
http://sveitalubbinn.blogspot.com/2007_06_01_archive.html
Þriðjudagur, júní 26, 2007. Og flestir geta víst giskað á af hverju. Heim komst ég og mikið andskoti var það ljúft (eina se skyggði á voru óheyrileg fjárútlát til að koma öllum farangri heim, draslið mitt óx með veldisvexti í vetur. Þetta verður ekki mikið lengra, þarf að haska mér út til að halda áfram að slá kirkjugarðinn og svo hlaupa á eftir nokkrum rollum í viðbót í kvöld. Sveitalubbinn í sumarstuði í sveitinni! Posted by Hallfríður Ósk at 2:21 e.h. Föstudagur, júní 22, 2007. Ég var einhvern tíman u...
sveitalubbinn.blogspot.com
Sveitalubbinn: maí 2007
http://sveitalubbinn.blogspot.com/2007_05_01_archive.html
Þriðjudagur, maí 22, 2007. Hvaða andskotans jafnrétti er í því að hafa jafna kynjaskiptingu í ráðherraembætti. Þegar karlar eru fleiri á þingi. Ég er ekki mjög klár í líkindareikningi en sýnist nokkuð augljóst að það er verið að taka konur fram yfir karla eingöngu á grundvelli kynferðis, konur hafi þá hærri líkur á að verða ráðherra og það getur að mínu mati aldrei talist jafnrétti. Þetta er dæmi um kvenréttindastefnu eða öðru nafni kvenrembu sem er alls ekki jákvæð. Laugardagur, maí 19, 2007. Sem sagt á...
sveitalubbinn.blogspot.com
Sveitalubbinn: nóvember 2008
http://sveitalubbinn.blogspot.com/2008_11_01_archive.html
Þriðjudagur, nóvember 11, 2008. Mikið er nú gott að einhverjir skuli vera tilbúnir að fórna sér til að létta manni lundina á þessum síðustu og verstu:). Frétt frá mbl.is. Búin að ætla að blogga lengi lengi en nenni því yfirleitt ekki nema helst þegar ég er í vinnunni. Þar sem blogg er víst ekki innifalið í starfslýsingunni hef ég setið á mér enda sjálfsagi mitt aðalsmerki í gegnum tíðina! Meira einhvern tíman síðar - veit bara ekki alveg hvenær. Posted by Hallfríður Ósk at 10:16 f.h. Helga, Palli og Co.
sveitalubbinn.blogspot.com
Sveitalubbinn: maí 2008
http://sveitalubbinn.blogspot.com/2008_05_01_archive.html
Mánudagur, maí 19, 2008. En þess á milli eru það fjárhúsin eins lengi og sauðburðurinn endist mér. Svo er það minitab. Púff, það á eftir að vera einhver hausverkur. Alla vega lítið um blogg á næstunni, spurning samt hvort ég hendi inn myndum þegar þessi kemur með flekkóttu lömbin sín :). Posted by Hallfríður Ósk at 7:04 f.h. Sunnudagur, maí 18, 2008. Kemur í ljós hvort það komi almennilegt blogg áður en ég held norður yfir heiði. Sveitalubbinn kveður úr miðnæturfuglasöng á eyrinni. Posted by Hallfríður Ó...
sveitalubbinn.blogspot.com
Sveitalubbinn: ágúst 2007
http://sveitalubbinn.blogspot.com/2007_08_01_archive.html
Föstudagur, ágúst 31, 2007. Til að undirstrika breytt hegðunarmynstur skellti ég mér svo á og haldið ykkur nú - eitt stykki dömunámskeið. Held ég fjölyrði ekkert um það. Árangurinn varð heldur dapur og verða tæplega gerðar fleiri tilraunir í þessa átt. Segir kannski sitt um hæfileika manns í þessa átt þegar maður mætir í gúmmískóm og ullarpeysu á námskeiðið. Eins og sjá má er ég alla vega prýðilega vel lifandi, alveg á vísum stað á hótel mömmu og á mig ennþá sjálft og get því sagt með góðri samvisku að é...
sveitalubbinn.blogspot.com
Sveitalubbinn: mars 2007
http://sveitalubbinn.blogspot.com/2007_03_01_archive.html
Laugardagur, mars 31, 2007. Svona til viðvörunar - nú kemur löng, háfleyg og býsna persónuleg færsla þannig að þeir sem ekki nenna að lesa svoleiðis hætta núna en öllum er frjálst að lesa og tjá sig - annars væri ég ekki að setja þetta á netið. En ef eitthvað er hefur virðing mín fyrir þessum mönnum farið stöðugt vaxandi eftir að ég kom hingað út. Greipur var alltaf svo ósköp góður við mig og reyndar verð ég að viðurkenna að mín væntumþykja í hans garð var víst ekki síst tilkomin af því að hann var mikil...