brusselgengid.blogspot.com
Brusselgengið: janúar 2010
http://brusselgengid.blogspot.com/2010_01_01_archive.html
Fimmtudagur, janúar 28, 2010. Þegar familían var stödd á Rauðasandi í sumar var ákveðið að taka fjölskyldumynd með aðstoð tækninnar (þrífóts og fjarstýringar). Það þurfti nokkrar tökur til að ná góðri mynd . From Sumarfrí á Vestfjörðum. Þegar maður er stubbur er maður ekkert alltaf að fylgjast með þegar á að fylgjast með! From Sumarfrí á Vestfjörðum. Og stundum er meira spennandi að fylgjast með því sem stóri bróðir er að gera! From Sumarfrí á Vestfjörðum. From Sumarfrí á Vestfjörðum. Nú voru góð ráð dýr.
brusselgengid.blogspot.com
Brusselgengið: Breyttir tímar
http://brusselgengid.blogspot.com/2010/09/breyttir-timar.html
Þriðjudagur, ágúst 17, 2010. Nú eru tímarnir heldur betur að breytast og börnin að stækka. Kjartan er að byrja í skóla! Ekki laust við að foreldrarnir séu með kvíðahnút í maganum og voni það besta að allt gangi vel. Þorbjörn er svo að færast yfir á stóru deildina, byrjaði í aðlögun á Dvergalandi strax eftir sumarfríið. Eftir fyrsta daginn á Dvergalandi sagði hann við mig þegar ég sótti hann: Mamma, þegar maður er á Dvergalandi, þá er maður dvergur! Gerast áskrifandi að: Birta ummæli (Atom).
brusselgengid.blogspot.com
Brusselgengið: Dagur
http://brusselgengid.blogspot.com/2010/09/dagur.html
Miðvikudagur, september 01, 2010. Tobbi er mikið að spá og spekúlera í orðum þessa dagana. Í morgun kom hann upp í eldsnemma og byrjaði að brölta ofan á mér og allt í kringum mig. Ég sussa á hann og segi, Tobbi það er nótt! Þá lagðist hann rólegur niður og þóttist sofa. Eftir dágóðan tíma og mikla þolinmæði af hálfu Tobba, þá loksins fer ég að sýna merki um að fara fram úr. Þá spyr Tobbi: Mamma, er núna kominn dagur? En einn leikskólakennarinn hans Tobba heitir Dagur. Make your own badge here.
brusselgengid.blogspot.com
Brusselgengið: febrúar 2010
http://brusselgengid.blogspot.com/2010_02_01_archive.html
Mánudagur, febrúar 22, 2010. Nú er komið að því að fá hnút í magann. elsta barnið orðinn 6 ára! Það eru reyndar komnar 2 vikur síðan svo tilhugsunin er farin að venjast. og já, það er búið að skrá unga herramanninn í skóla í haust. Hér eru nokkrar myndir frá afmælisdeginum og þeim tveim veislum sem haldnar voru. Fleiri myndir finnast í albúminu. Labels: afmæli og tyllidagar. Gerast áskrifandi að: Færslur (Atom). Ella, Hrafnkell, Kjartan og Þorbjörn lýsa ævintýrum sínum í höfuðborginni á hjara veraldar.
brusselgengid.blogspot.com
Brusselgengið: mars 2010
http://brusselgengid.blogspot.com/2010_03_01_archive.html
Sunnudagur, mars 28, 2010. Hrafnkell tók þátt í blúsrúnti og bílasýningu með Bláu Lenu. Við strákarnir kíktum í heimsókn og fengum að vera með í lokarúntinum. Mánudagur, mars 22, 2010. Leikrit dagsins #43 - Uppskrift að eldfjalli. Kjartan: Mamma, veistu hvernig maður býr til eldfjall? Mamman: Nei, ég vissi ekki einu sinni að það væri hægt að búa til eldfjall. Kjartan: Jújú, fyrst þarf maður bara að moka rosadjúpa holu. Svo setur maður fullt af sandi í holuna. Mamman: Jahá, þetta er merkilegt. Gerast áskr...
brusselgengid.blogspot.com
Brusselgengið: Laus tönn
http://brusselgengid.blogspot.com/2010/06/laus-tonn.html
Sunnudagur, júní 20, 2010. Kjartan gat ekki sofnað. Endaði á að væla og skæla yfir því að vera illt í tönninni. Mamman í áhyggjukasti fór auðvitað inn til hans að tékka á málunum. Eftir smá umtal fékkst hann loks til þess að benda mér á tönnina sem honum væri illt í og reyndist það vera önnur framtönnin í efri góm. Ég fór að pota aðeins í tönnina og uppgötvaði þá að hún var laus, sem og báðar framtennurnar í neðri góm. Gerast áskrifandi að: Birta ummæli (Atom). Grettukeppni í Vatnsfirði sumarið 2009.
brusselgengid.blogspot.com
Brusselgengið: Geyma peninga í vinnunni
http://brusselgengid.blogspot.com/2010/05/geyma-peninga-i-vinnunni.html
Föstudagur, maí 21, 2010. Geyma peninga í vinnunni. Svo heyrist í Tobba stuttu síðar: Við þurfum að fara í útifötin, og fara í vinnuna til að sækja peninga! Gerast áskrifandi að: Birta ummæli (Atom). Ella, Hrafnkell, Kjartan og Þorbjörn lýsa ævintýrum sínum í höfuðborginni á hjara veraldar. Grettukeppni í Vatnsfirði sumarið 2009. This is a Flickr badge showing public photos from ellainthesun. Make your own badge here. Vinir og vandamenn (sem enn blogga stundum.). Helga, Grímur, Freyr and Urður.
brusselgengid.blogspot.com
Brusselgengið: 4 ára
http://brusselgengid.blogspot.com/2010/09/4-ara.html
Fimmtudagur, september 30, 2010. Originally uploaded by ellainthesun. Þessi ungi maður er orðinn 4ra ára og heldur betur stoltur af því "að vera orðinn stór"! Vá hvað tíminn líður hratt! Gerast áskrifandi að: Birta ummæli (Atom). Ella, Hrafnkell, Kjartan og Þorbjörn lýsa ævintýrum sínum í höfuðborginni á hjara veraldar. Grettukeppni í Vatnsfirði sumarið 2009. This is a Flickr badge showing public photos from ellainthesun. Make your own badge here. Vinir og vandamenn (sem enn blogga stundum.).
brusselgengid.blogspot.com
Brusselgengið: október 2010
http://brusselgengid.blogspot.com/2010_10_01_archive.html
Þriðjudagur, október 19, 2010. Leikrit dagsins #45 - Morgunverk sólarinnar. Mamman og Tobbi röltu saman á leikskólann í morgunsárið, í morgunskímunni og 2 gráðu hita. Tobbi: Það er myrkur. Mamma: Nei nei, það er að birta, myrkrið er að fara. Mamman lítur upp í himininn og bendir: Sjáðu, þarna er blár himinn. Tobbi, eftir smá umhugsun: Af hverju er himininn ekki gulur? Gerast áskrifandi að: Færslur (Atom). Ella, Hrafnkell, Kjartan og Þorbjörn lýsa ævintýrum sínum í höfuðborginni á hjara veraldar.
brusselgengid.blogspot.com
Brusselgengið: desember 2010
http://brusselgengid.blogspot.com/2010_12_01_archive.html
Miðvikudagur, desember 01, 2010. Mamma, hvaða ber er núna? Tobbi: Mamma, hvaða ber er núna? Og fattaði svo hvað var átti við þar sem við vorum að ræða um jólin). Það er nóvember. Mamman: Já, svo kemur desember þegar nóvember er búinn. Tobbi: Koma þá jólin? Mamman: Nei, ekki alveg strax. Jólin eru ekki fyrr en það eru búnir 24 dagar í desember. Tobbi: Kemur desember á morgun? Mamman: Nei, ekki á morgun, en eftir 2 daga. Tobbi: Svona mikið (og réttir út 2 fingur)? Gerast áskrifandi að: Færslur (Atom).